- Auglýsing -
- Svartfellingurinn Vuko Borozan hefur gengið til liðs við Al-Arabi í Doha í Katar. Sennilegt er talið að hann verði einnig leikmaður landsliðs Katar. Fjögur ár eru liðin síðan Borozan gaf kost á sér í landslið Svartfellinga. Þess vegna ætti hann að vera orðinn gjaldgengur með öðru landsliði samkvæmt reglum Alþjóða handknattleikssambandsins.
- Didier Dinart kom til Sádi Arabíu í gær. Hann er sterklega orðaður við starf landsliðsþjálfara í handknattleik karla í konungsríkinu. Dinart var sagt upp störfum landsliðsþjálfara Frakklands í handknattleik karla eftir EM 2020 eftir að franska landsliðið náði sér ekki á strik. Síðan hefur lítið farið fyrir gamla varnarjaxlinum.
- Ómar Ingi Magnússon skoraði fimm af mörkum SC Magdeburg þegar liðið vann danska meistaraliðið Aalborg, 28:25, í æfingaleik í Danmörku um helgina. Aron Pálmarsson skoraði tvisvar fyrir Aalborg-liðið. Michael Damgaard fór á kostum og skoraði ellefu sinnum fyrir Magdeburg. Báðum liðum vantaði leikmenn sem eru í fríi eftir að hafa tekið þátt í Ólympíuleikunum.
- Næsta keppnistímabil verður það síðasta hjá Andy Schmid með þýska liðinu Rhein-Neckar Löwen. Hann ætlar að flytja heim til Sviss sumarið 2022 eftir 12 ár í Þýskalandi. Schmid er 37 ára gamall og hefur verið einn allra snjallasti miðjumaðurinn í þýskum handknattleik um árabil.
- Auglýsing -