- Auglýsing -
- Norska landsliðskonan Kristine Breistøl hefur framlengt samning sinn við Győri Audi ETO. Breistøl leikur lykilhlutverk í vörn Evrópumeistaranna. Hún hefur leikið með liðinu frá 2024 en var áður hjá Esbjerg og Larvik.
- Anders Thomsen hefur tekið við stjörnuprýddu liði HØJ Elite í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik karla. Eftir dapurt gengi liðsins í vetur var Norðmanninum Stian Tønnesen gert að taka pokann sinn fyrir helgi. Thomsen er ráðinn úr út leiktíðina. Hann var um skeið með Ribe-Esbjerg en hætti fyrir tveimur árum eftir að hafa lítt slegið í gegn.
- Danski markvörðurinn Mike Jensen hefur ákveðið að lengja dvöl sína hjá þýska liðinu Rhein-Neckar Löwen til næstu tveggja ára. Jensen kom til félagsins í sumar frá One Veszprém í Ungverjalandi í skiptum fyrir sænska landsliðsmarkvörðinn Mikael Appelgren.
Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -



