- Auglýsing -
- Þýski landsliðsmaðurinn og vinstri hornamaðurinn Rune Dahmke hefur skrifað undir nýjan samning við THW Kiel til eins árs, út leiktíðina 2027. Dahmke fylgdi þar með í fótspor Domagoj Duvnjak og Hendrik Pekeler.
- Arnór Atlason þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins TTH Holstebro verður án línumannsins Frederik Arnoldsen það sem eftir er leiktíðar. Arnoldsen meiddist á hné á æfingu á dögunum. Nú er ljóst að hann verður ekki búinn að jafna sig fyrr en að keppnistímabilið verður afstaðið.
- Handknattleikssamband Sviss hefur framlengt starfssamning við Knut Ove Joa þjálfara kvennalandsliðsins til næstu þriggja ára. Norðmaðurinn hefur þegar þjálfað landsliðið í þrjú ár. Síðan hefur landsliðið tekið framförum og komist í milliriðla á tveimur síðustu stórmótum. Forsvarsmenn Sviss horfa til langs tíma og hafa sett upp áætlun fram til ársins 2032 með von um að kvennalandsliðið verði með á Ólympíuleikum það ár.
- Spænska landsliðskonan Ona Vegué i Pena yfirgefur Blomberg-Lippe í sumar og gengur til liðs við Borussia Dortmund. Pena kom til Blomberg-Lippe fyrir þremur árum.
- Leon Nowottny, þriðji markvörður THW Kiel, gengur til liðs við HSV Hamburg í sumar. Hann vill gjarnan fá meiri leiktíma sem reynist örðugt í samkeppni við Andreas Wolff og Gonzalo Pérez de Vargas hjá THW Kiel.
- Franski landsliðsmaðurinn Nicolas Tournat hefur skrifað undir nýjan samning við Nantes. Samningurinn er til næstu fjögurra ára.
- Auglýsing -


