- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Duijndam, Homayed, Buric, Gustad

Rinka Duijndam markvörður hollenska landsliðið færir sig um set innan Evrópu fyrir næsta keppnistímabil. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -
  • Markvörður hollenska kvennalandsliðsins í handknattleik, Rinka Duijndam, hefur samið við franska liðið Chambray Touraine Handball fyrir næsta keppnistímabil. Duijndam lék með Rapid Búkarest á nýliðnu keppnistímabili. 
  • Ungverska meistaraliðið One Veszprém og þýska liðið SG Flensburg-Handewitt eru sögð hafa ríkan áhuga á að semja við egypska markvörðinn Abdelrahman Homayed. Homayed hefur vakið mikla athygli síðustu mánuði fyrir vasklega frammistöðu með egypska meistaraliðinu Al Ahly.
  • Homayed er 26 ára gamall. Hann þekkir til evrópsks handknattleiks eftir að hafa verið hjá pólska liðinu Wisla Plock fyrir fimm árum. 
  • Hermt er að Benjamin Buric sé óánægður með fá tækifæri hjá Flensburg síðustu mánuði og vilji losna þótt samningur hans við félagið gildi til næstu þriggja ára. 
  • Nýr formaður norska handknattleikssambandsins, Randi Gustad, segir að svo kunni að fara að úrslitaleikur EM kvenna 2028 fari ekki fram í Noregi eins og til standi vegna þess að ekkert bólar á loforðum um byggingu á íþróttahöll vegna keppninnar.
  • Gustad segir að yfirvöld dragi lappirnar og fari fram sem horfi fari úrslitaleikurinn fram í Danmörku eða Svíþjóð en frændþjóðirnar þrjár verða gestgjafar mótsins eins og á HM kvenna 2023. Þá var leikið til úrslita í Danmörku. 
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -