- Auglýsing -
- Laura Glauser, annar landsliðsmarkvörður Frakka á síðustu árum, hefur samið við CSM Bucaresti, eftir því sem Eurosport greinir frá samkvæmt heimildum. Glauser hefur verið einn þriggja markvarða Györ í Ungverjalandi. Hún hefur hins vegar verið óánægð með ónóg tækifæri með liðinu og staðið í skugga af löndu sinni Amandine Leynaud og norska landsliðsmarkverðinum Silju Solberg.
- Leynaud flytur heim í sumar eins og áður hefur komið fram á handbolti.is en hins vegar bætist danski markvörðurinn Sandra Toft í hóp markvarða Györ ásamt Solberg. Glauser flytur sig þar með um set yfir til Rúmeníu. CSM greiðir Györ um jafnvirði rúmlega fimm milljóna króna fyrir Glauser.
- Danska úrvalsdeildarliðið GOG hefur samið við sænskan markvörð, Tobias Thulin. Hann kemur til félagsins í sumar þegar Viktor Gísli Hallgrímsson og Torbjørn Bergerud hverfa á braut. Viktor Gísli til Nantes í Frakkland og Bergerud til Kolstad í Noregi. Auk Thulin mun Mattias Rex, ungur og efnilegur markvörður, standa á milli stanganna hjá GOG á næsta vetri.
- Aleix Gómez skoraði sjö mörk og var markahæstur leikmanna Barcelona þegar þeir lögðu Bidasoa í úrslitum spænsku bikarkeppninnar í handknattleik karla á sunnudaginn, 37:29.
- Svava Lind Gísladóttir hefur skrifað undir nýjan samning um að leika með Fjölni/Fylki í Grill66-deild kvenna á næsta keppnistímabili.
- Auglýsing -