- Auglýsing -

Molakaffi: Gros, til Þýskalands, áskorun, Lassen, leikið á ný

Ana Gros landsliðskona Slóveníu. Mynd/EPA
- Auglýsing -
  • Slóvenska handknattleikskonan Ana Gros hefur samið við franska liðið Brest Bretagne til tveggja ára. Brest varð í öðru sæti frönsku 1. deildarinnar í vetur sem leið og lék í Meistaradeildinni. Gros lék áður með Brest frá 2018 til 2021. Hún kveður nú Krim Ljubljana í heimalandinu eftir eins árs vist að þessu sinni. Gros er 34 ára gömul og var m.a. fánaberi Slóvena við setningaathöfn Ólympíuleikana í París fyrir ári.
  • Þýskir fjölmiðlar eru þegar byrjaðir að velta vöngum yfir því hvort spænski landsliðsmaðurinn Alex Dujshebaev komi til félags í Þýskalandi þegar hann yfirgefur Industria Kielce að ári liðnu. Eins og handbolti.is og fleiri fjölmiðlar sögðu frá um helgina ætla bræðurnir Alex og Daniel Dujshebaev að klippa á naflastrengin eftir ár og kveðja Kielce sem faðir þeirra, Talant, hefur þjálfað í 11 ár.
  • Þýska stórliðið THW Kiel er sagt eiga í talsverðum fjárhagserfiðleikum eftir að liðið hefur ekki unnið þýska meistaratitilinn í tvö ár og um leið misst af sæti í Meistaradeild Evrópu tvö ár í röð. Félagið hefur orðið af talsverðum tekjum vegna þess til þess að standa undir töluvert háaum launakostnaði auk falls í tekjum af sölu aðgöngumiða á kappleiki og sölu varnings.
  • Viktor Szilagyi framkvæmdastjóri THW Kiel segir að næsta keppnistímabil verði töluverð áskorun fyrir félagið, utan vallar sem innan, m.a. vegna þess að ljóst er að félagið mun ekki taka þátt í Meistaradeild Evrópu.
  • Jacob Lassen, stoðsendingakóngur þýsku 1. deildarinnar í handknattleik á síðasta keppnistímabili, er sagður á leiðinni til Rhein-Neckar Löwen frá HSV Hamburg. Daninn mun eiga að koma í stað Króatans Ivan Martinovic sem hefur verið sterklega orðaður við ungverska meistaraliðið One Veszprém.
  • Þrátt fyrir töluvert málavafstur þá verður ekki hjá því komist að Tusem Essen og DessauRoßlauer mætist á ný í síðasta leik þýsku 2. deildarinnar 29. júní. Eins og handbolti.is sagði frá á dögunum þá skipaði dómstóll liðunum að leika á ný eftir að framkvæmd viðureignar liðanna í lok apríl var í handaskolum vegna axarskafta eftirlitsmanns og tímavarðar. Bæði félög hafa reynt að andæfa gegn dómnum en ekki haft erindi sem erfiði. Tapi Dessau-Roßlauer leiknum fellur liðið í 3. deild í stað ASV Hamm. Tillögu að fjölga liðum í 2. deild úr 18 í 19 hefur verið hafnað. Nánar má lesa um málið hér.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -