- Auglýsing -
- Hafþór Már Vignisson skoraði eitt mark þegar lið hans Empor Rostock steinlá í heimsókn til Tusem Essen, 26:15, í fyrstu umferð þýsku 2. deildarinnar í handknattleik í gærkvöld.
- Sveinn Andri Sveinsson var í leikmannahópi Empor Rostock en kom lítið sem ekkert við sögu. Fyrr í gær tilkynnti Empor Rostock að Sveinn Andri væri kominn til félagsins frá Aftureldingu en beðið hefur verið eftir formlegri staðfestingu á vistaskiptum.
- Bjarki Már Elísson lék ekki með Veszprém vegna meiðsla þegar liðið tryggði sér sæti í úrslitaleik SHEA-League (Austur-Evrópudeildarinnar) í handknattleik karla í gærkvöld. Veszprém vann Eurofarm Pelister frá Norður Makedóníu, 41:27, í undanúrslitaleik í Zadar í Króatíu. Þetta var þriðji leikur Veszprém í röð þar sem Bjarki Már situr yfir vegna meiðsla.
- Veszprém mætir PPD Zagreb í úrslitaleik í Zadar á sunnudaginn. Pelister og króatíska liðið Nexe kljást um þriðja sætið. Nexe tapaði fyrir Zagreb, 32:26, í hinni viðureign undanúrslita.
- Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði fjögur mörk fyrir IFK Skövde jafntefli við Önnereds HK, 28:28, í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum sænsku bikarkeppninnar í gær. Síðari leikurinn fer fram í Skövde á miðvikudaginn.
- Auglýsing -