- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Molakaffi: Hendawy, Källman, Poulsen

- Auglýsing -
  • Egypski landsliðsmarkvörðurinn Karim Hendawy hefur verið leystur undan samningi hjá þýska liðinu HSG Wetzlar. Hendawy kom til félagsins fyrir leiktíðina vegna meiðsla Bart Ravensbergen. Hendawy hefur ekki átt upp á pallborðið síðustu vikur í framhaldið af komu sænska markvarðarins Andreas Palicka enda ekki mikil þörf á þremur markvörðum þrátt fyrir að illa vegni innan vallar. Niðurstaðan varð sú að leysa Hendawy nú þegar undan samningi sem átti annars að vera í gildi fram í júní. 
  • Svíinn Jonas Källman verður áfram aðstoðarþjálfari ungverska liðsins Pick Szeged. Hann hefur skrifað undir samning til tveggja ára. Källman kom til félagsins fyrir 12 árum sem leikmaður og var leikmaður fram til 2021. Eftir að hann lagði skóna á hilluna reyndi Källman fyrir sér í þjálfun hjá Benfica en hætti eftir tvö ár og tók starfi aðstoðarþjálfara Pick Szeged. 
  • Færeyski landsliðsmaðurinn  Vilhelm Poulsen hefur framlengt samning sinn við HannoverBurgdorf til eins árs. Poulsen lék með Fram frá 2020 til 2022 en fór eftir það til Danmerkur hvaðan hann hélt til Þýskalands og samdi við Hannover-Burgdorf fyrir tveimur árum.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -