- Auglýsing -

Molakaffi: Hlynur, Fagregas, EM2034, Gomes, Hernández, Horvat

Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -
  • Hlynur Leifsson er eftirlitmaður á leikjum heimsmeistaramóts 21 árs landsliða karla í handknattleik sem hófst í Póllandi í gær. Hlynur var snemma á fótum og mættur í eftirlit á leik Austurríkis og Argentínu í B-riðli í Płock. Austurríska landsliðið vann öruggan sigur, 29:23.  Ekki hafði Hlynur lokið störfum í gær fyrr en hann hafði verið eftirlitsmaður á viðureign Póllands og Úrúgvæ
  • Barcelona staðfesti í gær að franski línumaðurin öflugi, Ludovic Fabregas, gangi til lið við félagið á nýjan leik í sumar að lokinni tveggja ára veru hjá One Veszprém. Fabregas lék með Barcelona frá 2018 til 2023. Samningur Fabregas við Barcelona er til næstu fimm ára. 
  • Bor Rozman formaður handknattleikssambands Slóveníu greindi frá því í gær að Slóvenar, Serbar og Norður Makedóníumenn væru að velta fyrir sér að sameina kraftana og sækja um að halda Evrópumót karla í handknattleik árið 2034.  EM var síðast haldið í Slóveníu 2004 og átta árum síðar í Serbíu. Norður Makedónía hefur aldrei verið gestgjafi EM í karlaflokki en var einn gestgjafa á EM kvenna 2022.
  • Spænski fjölmiðillinn Mundo Deportivo segir frá því að Sergey Hernández markvörður SC Magdeburg sem fór á kostum í úrslitaleik Meistaradeildar síðasta sunnudag, komi til Barcelona sumarið 2026 þegar Emil Nielsen  flytur til One Veszprém í Ungverjalandi. Viktor Gísli Hallgrímsson leikur með Barcelona frá og með næstu leiktíð og verður þar með samherji Hernández ef af þessum skiptum verður hjá Hernández og Nielsen. 
  • VfL Gummersbach, sem Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar, hefur samið við portúgalska handknattleiksmanninn, João Gomes, til þriggja ára. Gomes kemur til þýska liðsins frá Sporting Lissabon
  • Króatinn Ivan Horvat hefur yfirgefið herbúðir austurríska liðsins Alpla Hard sem Hannes Jón Jónsson þjálfar. Ekki hefur verið greint frá því hvert Horvat fer að öðru leyti en svo að hann verður áfram í Austurríki. Horvat vakti athygli í vor þegar hann var dæmdur í 26 mánaða keppnisbann. Félagið áfrýjaði dómnum fyrir hans hönd og hafði erindi sem erfiði. Bannið  var stytt niður í 12 mánuði, þar af 6 mánuðir skilorðsbundnir. 
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -