- Auglýsing -
- Hinn sigursæli Nikolaj Jacobsen stýrði danska landsliðinu til í 150. skipti í gær þegar liðið vann Brasilíu, 33:21, í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins. Jacobsen tók við þjálfun danska landsliðsins 2017 þegar Guðmundur Þórður Guðmundsson lét af störfum. Síðan hefur Jacbosen stýrt danska landsliðinu til sigurs á þremur heimsmeistaramótum í röð auk þess að vinna gullverðlaun á Ólympíuleikunum síðasta sumar. Jacbosen, sem er 52 ára gamall og fyrrverandi landsliðsmaður, er samningsbundinn danska handknattleikssambandinu til ársins 2030.
- Danska landsliðið hefur leikið 35 leiki í röð án þess að tapa eftir viðureignina í gær. Danir leika við Portúgal í undanúrslitum annað kvöld í Unity Arena-keppnishöllinni í Bærum í Noregi. Flautað verður til leiks klukkan 19.30.
- „Danir eru ef til vill með besta landsliðið en við höfum sýnt að allt er mögulegt,“ sagði hinn þrautreyndi Rui Silva landsliðsmaður Portúgals í samtali við TV2 í Danmörku eftir sigur portúgalska landsliðsins á þýska landsliðinu í framlengdri viðureign í átta liða úrslitum í gærkvöld.
- Suður-kóreska stórskyttan Ryu Eun Hee hefur ákveðið að endurnýja ekki samning sinn við Evrópumeistara Györ þegar leiktíðin verður á enda. Hún ætlar sér að flytja heim. Hee hefur leikið með Györ frá 2021 en var áður m.a. hjá Paris 92.
- Hollenska landsliðskonan Larissa Nüsser hefur samið við rúmenska liðið Gloria 2018. Nüsser varð atvinnulaus í upphafi ársins þegar norska meistaraliðið Vipers Kristiansand lognaðist út af. Sömu sögu er að segja af Paula Arcos sem var innan raða Vipers. Hún hefur gengið til liðs við Gloria 2018 sem lék til úrslita í Evrópudeild kvenna á síðustu leiktíð.
- Auglýsing -