- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Molakaffi: Katla, Stiven, Tjörvi, Sveinn, Árni, Elías

- Auglýsing -
  • Katla María Magnúsdóttir var markahæst hjá Holstebro með sjö mörk þegar liðið vann SIK Viborg, 36:24, í síðustu umferð næstefstu deildar danska handknattleiksins í gær. Nokkuð er síðan Holstebro vann deildina og tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni á næsta keppnistímabili. Holstebro vann 19 af 22 leikjum og var fjórum stigum á undan Ajax sem hafnaði í öðru sæti.
  • Stiven Tobar Valencia skoraði þrjú mörk fyrir Benfica í öruggum sigri liðsins á Águas Santas í fyrstu umferð undanúrslitakeppni fjögurra efstu liðanna í portúgölsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Leikið var í Lissabon.
  • Tjörvi Týr Gíslason skoraði tvö mörk fyrir HC Oppenweiler/Backnang í enn einu tapi liðsins í þýsku 2. deildinnni í gær. HC Oppenweiler/Backnang beið þá lægri hlut fyrir TV Großwallstadt, 29:27, á heimavelli. HC Oppenweiler/Backnang rekur lestina í deildinni með aðeins 2 stig eftir 25 leiki. Virðist ekkert annað en fall í 3. deild bíða liðsins þegar níu umferðir eru eftir.
  • Sveinn Jóhannsson skoraði þrisvar í níu marka sigri Chambéry, 33:24, á Sélestat á heimavelli í frönsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Chambéry situr í fimmta sæti deildarinnar með 24 stig eftir 21 leik.
  • Árni Bergur Sigurbergsson skoraði fimm mörk fyrir Ryger Stavanger þegar liðið tapaði fyrir Viking TIF, 38:26, í næstefstu deild norska handknattleiksins í gær. Ryger er í þriðja neðsta sæti deildarinnar með 13 stig eftir 24 leiki af 26. Bjørnar og Grenland eru í tveimur neðstu sætunum með 12 og 10 stig. Tvö lið falla úr deildinni en liðin í þriðja og fjórða neðsta sæti taka þátt í umspili.
  • Elías Már Halldórsson er þjálfari Ryger Stavanger. Hann söðlar um í vor og tekur við B-liði Storhamar.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -