- Auglýsing -
- Þrír leikmenn Veszprém eru og verða heima hjá sér næstu daga vegna þess að þeir eru allir smitaðir af kórónuveirunni eftir að hafa spilað landsleiki á síðustu viku. Um er að ræða Spánverjann Jorge Maqueda og Ungverjana Patrik Ligetvari og Marton Szekely. Enginn þeirra finnur til alvarlegra einkenna, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá ungverska meistaraliðinu.
- Klemen Ferlin, markvörður þýska liðsins Erlangen og slóvenska landsliðsins, greindist með kórónuveiruna í fyrradag. Hugsanlega smitaðist hann í æfingabúðum með landsliði Slóveníu í síðustu viku. Ferlin lék þar af leiðandi ekki með Erlangen gegn Stuttgart í gærkvöld. Bæði lið voru án aðalmarkvarða því Johannes Bitte, landsliðsmarkvörður Þjóðverja, er einnig með veiruna og lék ekki með Stuttgart.
- Sænski landsliðsmaðurin Jonathan Carlsbogard leikur ekki með Lemgo næstu vikur eftir að hafa meiðst í leikjum með sænska landsliðinu í síðustu viku.
- Eitt þekktasta dómarapar Noregs, Guro Røen og Kjersti Arntsen, hefur ákveðið að taka flautur sínar ofan af hillunni og blása í þær á nýjan leik. Røen og Arntsen hættu að dæma fyrir tveimur árum eftir að hafa verið í eldlínunni saman í sex ár. Á þeim tíma dæmdu þær m.a. Úrslitaleik Rússa og Frakka á Ólympíuleikunum í Ríó 2016. Alls hafa þær dæmt á þremur heimsmeistaramótum, tveimur Evrópumótum auk Ólympíuleika, úrslitaleik Meistaradeild kvenna og alls fjórum sinnum í úrslitahelgi keppninnar.
- Milos Bozovic, landsliðsmaður Svartfjallalands, hefur yfirgefið RK Zagreb eftir stutta veru. Hann hefur þegar samið við Tatabanya í Ungverjalandi.
- Auglýsing -