- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Lovísa, Sandra, Óðinn Þór, Ómar Ingi, Gísli Þorgeir, Geiger

Lovísa Thompson leikur ekki fleiri leiki með Ringkøbing. Mynd/Ringkøbing Håndbold
- Auglýsing -
  • Lovísa Thompson og nýir samherjar hennar í Ringkøbing Håndbold höfnuðu í öðru sæti á æfingamóti í St Gallen í Sviss sem lauk í gær. Ringkøbing Håndbold tapaði fyrir franska liðinu Dijon í úrslitaleik, 24:23. 
Sandra Erlingsdóttir í leik með þýska liðinu Metzingen. Mynd/Metzingen
  • Sandra Erlingsdóttir lék með þýska liðinu Metzingen á sama móti. Hafnaði þýska liðið í þriðja sæti. M.a. skildu Ringkøbing Håndbold og Metzingen jöfn, 33:33, í hörkuleik. Sandra skoraði tvö mörk í  leiknum við Ringkøbing og einnig tvö mörk í sigri á LC Brühl í gær, 39:29. 

  • Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 7/2 mörk þegar svissneska liðið Kadetten vann danska meistaraliðið GOG, 33:32, eftir vítakeppni á æfingamóti, Heide-cup, í fyrradag. Hann skoraði síðan 6/2 í gær þegar Kadetten vann Wetzlar, 33:29. Aðalsteinn Eyjólfsson er þjálfari Kadetten sem leikur næst á móti Ólafi Andrési Guðmundssyni og samherjum í GC Amicitia Zürich í meistarakeppninni í Sviss á næsta sunnudag. Kadetten er ríkjandi meistari í Sviss
  • HSV Hamburg vann mótið sem getið er um hér að ofan eftir að hafa lagt Viggó Kristjánsson og félaga í vítakeppni sem ætlaði aldrei að fá enda. Leiknum lauk 46:45. 
  • Ómar Ingi Magnússon skoraði fimm mörk og Gísli Þorgeir Kristjánsson þrjú þegar lið þeirra, þýska meistaraliðið SC Magdeburg, vann dönsku bikarmeistarana Aalborg Håndbold, 32:29, í úrslitaleik í  Arendal í Noregi í gær.  Ekki lágu á lausu upplýsingar í gærkvöld hvort Aron Pálmarsson skoraði mark fyrir Aalborg. 

  • Rúmenska handknattleikskonan Melinda Geiger hefur óvænt tekið skóna ofan af hillu og dustað af þeim rykið. Þrjú ár er liðin síðan Geiger hætti. Hún hefur samið við Baia Mare í heimalandi sínu. Áður en hún hætti þá lék Geiger með Siofok og þar áður með Brest í Frakklandi.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -