- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Molakaffi: Óðinn, Ísak, Árni, Elías

- Auglýsing -
  • Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 12 mörk og var með fullkomna nýtingu í sex marka sigri Kadetten Schaffhausen á BSV Bern, 30:24, á útivelli í svissnesku A-deildinni í handknattleik í gær. Sjö markanna skoraði Óðinn Þór úr vítaköstum. Kadetten hefur yfirburðastöðu í deildinni þegar liðið á einn leik eftir óleikinn áður en kemur að úrslitakeppninni.
  • Ísak Steinsson var í leikmannahópi Drammen HK í gær þegar liðið gerði jafntefli við Halden TH, 27:27, á útivelli í 23. umferð norsku úrvalsdeildarinnar. Ísak kom lítið við sögu enda meiddist hann á dögunum og varð m.a. að draga sig út úr landsliðshópnum fyrir leikina við Svía í síðustu viku. Drammen er í 5. sæti norsku úrvalsdeildarinnar.
  • Árni Bergur Sigurbergsson skoraði sex mörk þegar Ryger Stavanger vann Haslum HK, 31:27, í næstefstu deild norska handknattleiksins í gær. Elías Már Halldórsson þjálfar Ryger Stavanger. Liðið er í 12. sæti af 14 þegar þrjár umferðir eru eftir.
  • Stöðuna í mörgum deildum evrópsks handknattleiks er að finna hér.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -