- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Molakaffi: Ólafur, Ísak, Katla, Monsi, Lena, Arnór, Árni, Elías

- Auglýsing -
  • Ólafur Brim Stefánsson og félagar í Junior Fasano töpuðu í gær fyrir neðsta liði ítölsku A-deildarinnar, Sparer Eppan, 29:28, á útivelli í gær. Ólafur Brim skoraði sex mörk og var markahæstur leikmanna Junior Fasano sem er áfram í fjórða sæti deildarinnar.
  • Ísak Gústafsson skoraði ekki mark þegar TMS Ringsted tapaði fyrir Skanderborg, 35:30, á heimavelli í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Guðmundur Bragi Ástþórsson var ekki í leikmannahópi TMS Ringsted í leiknum. Ringsted er í níunda sæti með 17 stig, aðeins stigi á eftir Sønderjyske.
  • Kristján Örn Kristjánsson, Donni, var ekki í hópnum hjá Skanderborg. Hann er að jafna sig eftir kviðslitsaðgerð í síðasta mánuði. Skanderborg er í öðru sæti dönsku úrvalsdeildarinnar.
  • Katla María Magnúsdóttir skoraði tvö mörk úr vítaköstum þegar lið hennar, Holstebro, tapaði fyrir Ajax, 26:22, í næstefstu deild danska kvennahandboltans í gær. Þetta var aðeins annað tap Holstebro í deildinni á leiktíðinni. Holstebro er í efsta sæti þegar fjórar umferðir eru eftir. Ajax er sex stigum á eftir í öðru sæti.
  • Úlfar Páll Monsi Þórðarson skoraði tvö mörk fyrir RK Alakloid fyrir Vardar, 28:25, í viðureign Skopje-liðanna í úrvalsdeild karla í Norður Makedóníu í gær. RK Alakloid er í fjórða sæti deildarinnar með 33 stig eftir 20 leiki. Liðið á tvær viðureignir eftir óleiknar. Vardar er efst með 38 stig og hefur aðeins tapað einum leik.
  • Lena Margrét Valdimarsdóttir var ekki á meðal þeirra sem skoruðu fyrir Skara HF þegar liðið tapaði á útivelli fyrir VästeråsIrsta HF, 28:24, í sænsku úrvalsdeildinni í gær. Skara HF er í fjórða sæti deildarinnar með 25 stig eftir 19 leiki, sjö stigum á eftir IK Sävehof sem trónir á toppnum.
  • Arnór Viðarsson skoraði tvisvar í tveggja marka sigri HF Karlskrona, 33:31, í heimasókn til VästeråsIrsta HF í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. HF Karlskrona er í 9. sæti deildarinnar með 21 stig eftir 21 leik og er aðeins einu stigi á eftir Önnereds og Ystads IF sem eru í næstu sætum fyrir ofan. Fjórar umferðir eru eftir hjá flestum liðum deildarinnar. Átta efstu liðin komast í úrslitakeppnina.
  • Árni Bergur Sigurbergsson skoraði fimm mörk í tveggja marka tapi Ryger Stavanger fyrir Kragerø í næstefstu deild norska handknattleiksins í gær. Elías Már Halldórsson er þjálfari Ryger sem er næstneðst í deildinni með 10 stig að loknum 19 leikjum af 26. Kragerø er í sjötta sæti.
  • Stöðuna í mörgum deildum evrópsks handknattleiks er að finna hér.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -