- Auglýsing -
- Ólafur Brim Stefánsson var næstmarkahæstur hjá Junior Fasano í jafntefli, 29:29, gegn Loacker Bozen Volksbank á heimavelli í gær í ítölsku A-deildinni í handknattleik. Ólafur Brim skoraði fimm mörk. Junior Fasano var þremur mörkum yfir í hálfleik, 16:13. Liðið situr í 4. sæti deildarinnar með 23 stig, ellefu stigum á eftir Magnago sem trónir á toppnum. Sjö umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Að henni lokinni taka fjögur efstu liðin þátt í úrslitakeppni um ítalska meistaratitilinn.
- Tryggvi Þórisson skoraði eitt mark í ellefu marka sigri Elverum á bikarmeisturum Runar, 38:27, á útivelli í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Elverum trónir sem fyrr á toppi deildarinnar. Liðið hefur náð í 41 stig í 22 leikjum og er sex stigum á undan Kolstad sem á leik til góða. Flest lið deildarinnar, þar á meðal Elverum, eiga fjóra leiki eftir.
- Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði ekki mark fyrir Kadetten Schaffhausen í sigri liðsins á Pfadi Winterthur, 35:30, í 24. umferð A-deildarinnar í handknattleik í Sviss í gær. Kadetten er fyrir löngu orðið deildarmeistari.
- Framundan er afar mikivægur leikur hjá Óðni Þór og samherjum á þriðjudaginn á heimavelli við danska liðið Fredericia HK. Sigurliðið kemst í fyrstu umferð útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar en tapliðið situr eftir með sárt ennið og hefur lokið þátttöku í keppninni.
Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -



