- Auglýsing -
- Olympiakos vann fyrsta úrslitaleikinn við AEK um gríska meistaratitilinn í handknattleik karla í gær. Leikið var á heimavelli AEK. Næst eigast liðin við á föstudaginn. Endurtaki Olympiakos leikinn verður liðið grískur meistari annað árið í röð og í fimmta sinn alls.
- Argentínumaðurinn Guillermo Milano heldur áfram þjálfun RK Vardar á næsta keppnistímabili. Milano tók við þjálfun Vardar í byrjun nóvember, rétt um það leyti sem liðið mætti Val í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Undir stjórn Milano hefur Vardar leikið 21 leiki, unnið 18, gert tvö jafntefli og tapaði einum.
- Vardar varð á laugardaginn bikarmeistari í Norður Makedóníu. Liðið lagði Eurofarm Pelister í úrslitaleik, 31:27. Úrslitakeppninni um meistaratitilinn er ekki lokið í Norður Makedóníu en sennilegt er að liðin tvö sem mættust í úrslitum bikarkeppninnar etji einnig kappi um meistaratitilinn. Undanúrslit hafa ekki verið leidd til lykta.
- Stefan Kneer fyrrverandi landsliðsmaður Þýskalands og núverandi þjálfari TV Hüttenberg var valinn þjálfari tímabilsins í 2. deild karla í Þýskalandi. Undir stjórn Kneer hafnaði Hüttenberg í 12. sæti deildarinnar en er sem stendur í 2. sæti fyrir lokaumferðina sem fram fer á laugardaginn.
- Ein reyndasta og fremst handknattleikskona Noregs á síðari árum, Heidi Løke, hefur verið ráðin annar þjálfari kvennaliðsins Runar Håndball. Løke er 42 ára gömul og hefur síðustu árin leikið með Larvik en fékk ekki endurnýjun samning í vor.
- Ekki kemur fram í fregnum hvort Løke ætli sér að leika með Runar Håndball en engum þarf að koma á óvart þótt hún hafi ekki alveg lagt skóna á hilluna góðu. Løke er einnig aðstoðarþjálfari pólska kvennalandsliðsins þar sem landi hennar er aðalþjálfari.
- Auglýsing -