- Auglýsing -
- Þýski línumaðurinn Hendrik Pekeler hefur framlengt samning sinn við THW Kiel til eins árs, fram á mitt árið 2027. Pekeler, sem er 34 ára gamall, sleit hásin undir lok síðasta keppnistímabil og byrjaði þar af leiðandi ekki leika á ný með Kiel fyrr en undir lok síðasta árs.
- Pekeler kom til liðs við THW Kiel ungur að árum sumarið 2008. Hann staldraði þá stutt við og lék um skeið með Bergischer HC, Lemgo og Rhein-Neckar Löwen en bættist á ný í hópinn hjá THW Kiel fyrir um áratug og hefur síðan leikið 331 leik fyrir lið félagsins.
- Ungversku Evrópumeistararnir í handknattleik kvenna, Györ, hafa falast eftir að kaupa Ida-Marie Dahl undan samningi við danska liðið Sønderjyske. Forráðamenn Györ hafa í hyggju að Dahl fylli skarð sænsku línukonunnar, Linn Blohm, sem sleit krossband á dögunum.
- Danski handknattleiksmaðurinn Casper Mortensen hefur ákveðið að yfirgefa HSV Hamburg í sumar eftir fimm ára vist. Mortensen er sagður ætla heim til Danmerkur af persónulegum ástæðum en 10 ár eru liðin síðan hann lék síðast í Danmörku. Mortensen lék með Barcelona í fimm ár áður en hann gekk til lið við HSV Hamburg.
- Noah Beyer leikmaður Bergischer HC fyllir skarðið sem Mortensen skilur eftir sig í vinstra horninu hjá HSV Hamburg þegar hann kveður í lok keppnistímabilsins.
Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -



