- Auglýsing -
- Paulo Pereira landsliðsþjálfari Portúgals í handknattleik karla er hættur þjálfun Celje Lasko eftir aðeins ár í starfi. Celje tapaði í undanúrslitum úrslitakeppninnar í Slóveníu.
- Pereira var ráðinn til Celje eftir að félagið auglýsti opinberlega eftir þjálfara LinkedIn sem þótti nýlunda.
- Bojana Popovic, sem var ein fremsta handknattleikskona heims snemma á öldinni, hefur óvænt ákveðið að taka fram skóna eftir nærri 10 ára hlé og taka þátt í kveðjuleik rúmensku handknattleikskonunnar Cristina Neagu 8. júní í Búkarest. Um stjörnuleik verður að ræða þar sem margar kunnar kempur koma saman til að hylla Neagu sem er að hætta.
- Spænski handknattleiksmaðurinn Ian Barrufet er ákveðinn í að halda heim til Barcelona í sumar eftir árs dvöl hjá MT Melsungen hvar hann er sem lánsmaður. Barrufet, sem er 21 árs gamall vinstri hornamaður, hefur gert það gott með Melsungen og var m.a. markahæsti leikmaður Evrópudeildarinnar á leiktíðinni með 81 mark og 82% skotnýtingu.
- Ian Barrufet er sonur David Barrufet sem lengi var markvörður Barcelona og spænska landsliðsins.
- Rússneski handknattleiksmaðurinn Timur Dibirov lék sinn síðasta keppnisleik á ferlinum í fyrrakvöld þegar RK Zagreb vann Našice, 30:27, og tryggði sér króatíska meistaratitilinn í handknattleik enn eitt ári. Dibirov verður 42 ára í sumar og lék um langt árabil með Vardar í Skopje en lauk ferlinum eftir þrjú ár hjá RK Zagreb. Ferilinn hóf Dibirov hjá Chekhovskiye Medvedi í Moskvu.
- Dibrov er einn fremsti vinstri hornamaður sögunnar auk þess að vera næst markahæsti leikmaður í sögu Meistaradeildar Evrópu. Á 21 árs ferli sem atvinnumaður í handbolta hefur Dibirov aðeins leikið með þremur félagsliðum.
- Eiginkona Dibirovs er Irina Poltoratskaya fyrrverandi landsliðskona og núverandi þjálfari Rostov-Don í Rússlandi.
- Filip Taleski, landsliðsmaður Norður Makedóníu, hefur ákveðið að snúa aftur heim til Vardar Skopje í sumar eftir að hafa leikið um tveggja ára skeið með Benfica í Portúgal.
Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -