- Auglýsing -
- PSG var franskur meistari 12. árið í röð í gærkvöld þegar liðið vann Istres, 39:31, í næst síðustu umferð deildarinnar. PSG hefur fjögurra stiga forskot í efsta sæti deildarinnar fyrir síðustu umferðina sem fram fer á laugardaginn. Nantes er í öðru sæti og fylgir PSG í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.
- Aalborg Håndbold vann Skjern í fyrstu viðureign liðanna um danska meistaratitilinn í handknattleik karla í gærkvöld, 26:22. Liðin mætast öðru sinni í Skjern á laugardaginn. Vinni Aalborg á nýjan leik í Skjern verður liðið meistari annað árið í röð í áttunda skipti alls.
- Fyrsti úrslitaleikur Odense og Esbjerg um danska meistaratitilinn í handknattleik kvenna fer fram í dag.
- Partizan Belgrad vann serbneska meistaratitilinn í gærkvöld. Partizan lagði Vojvodina öðru sinni í úrslitaeinvígi liðanna, 28:22, í Novi Sad, heimavelli Vojvodina sem vann titilinn fjögur undangengin ár.
- Miodrag Corsovic, sem lék með Val á fyrri hluta nýliðins keppnistímabils er einn leikmanna nýkrýndra meistara Partizan.
- Marko Grgic var valinn besti ungi leikmaðurinn í þýsku 1. deildinni á leiktíðinni sem er að ljúka. Valið kom fáum á óvart. Grgic hefur átt frábært tímabil með Eisenach og er sem stendur markahæstur í deildinni. Hann hefur tvisvar verið valinn leikmaður mánaðarins á leiktíðinni, fyrir desember og febrúar. Grigic gengur til liðs við Flensburg í sumar.
- Danska landsliðskonan Rikke Iversen leikur ekki með Esbjerg í úrslitarimmunni við Odense Håndbold um danska meistaratitilinn. Iversen er ólétt og verður frá keppni næsta árið.
- Þýski landsliðsmaðurinn Luca Witzke hefur ákveðið að ganga til liðs við Flensburg í sumar. Witzke er nú leikmaður Leipzig og lék sinn síðasta heimaleik fyrir félagið í gærkvöld.
Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -