- Auglýsing -
- Síðari tveir leikir átta liða úrslita heimsmeistaramóts karla í handknattleik fara fram í kvöld. Klukkan 16.30 mætast Danmörk og Brasilía í íþróttahöllinni í Bærum. Þremur stundum síðar hefst síðasti leikur átta liða úrslita þegar Portúgal og Þýskaland eigast við. Portúgal og Danmörk hafa ekki tapað leik á mótinu til þessa. Sigurliðin í leikjum kvöldsins leika til undanúrslita á föstudaginn. Fyrri leikur dagsins verður sýndur á RÚV en sá síðari á RÚV2.
- Króatía og Frakkland tryggðu sér sæti í undanúrslitum í gær og eigast við í undanúrslitaleik í Zagreb Arena á morgun, fimmtudag. Á föstudag ferðast liðin til Noregs og leika um fyrsta og þriðja sæti á sunnudaginn.
- Sænska landsliðskona Nina Koppang hefur samið við danska meistaraliðið Esbjerg sem einnig hefur krækt í svissnesku landsliðskonuna Mia Emmeneggen og þá hollensku Merel Frerik. Leikmennirnir koma til danska félagsins til lengri og skemmri tíma. Allar voru þær á samningi hjá Vipers Kristiansand sem varð gjaldþrota í ársbyrjun.
- Jamina Roberts, sem einnig lék með Vipers og er sænsk landsliðskona, hefur samið við danska úrvalsdeildarliðið Ikast.
- Frank Løke, fyrrverandi landsliðsmaður í handknattleik hyggst taka fram skóna á nýjan leik og freista þess að endurheimta sæti sitt í landsliðinu ef marka má yfirlýsingar hans. Løke er 44 ára gamall og lék síðast með landsliðinu fyrir 11 árum.
- Átta ár eru liðin síðan Løke lagði skóna á hilluna. Hann var árum saman atvinnumaður í handknattleik í Króatíu, Sviss en lengst í Þýskalandi. Løke rakst oft ekki vel í hóp og var m.a. vikið úr landsliðinu á sínum tíma vegna agabrota. Kappinn virðist í frábæru formi en hvort það nægi til þess að komast í fremstu röð á ný skal ósagt um látið.
- Auglýsing -