- Auglýsing -
- Sigurður Hjörtur Þrastarson og Svavar Ólafur Pétursson dæma leik HSG Blomberg-Lippe og JDA Bourgogne Dijon Handball í 1. umferð riðlakeppni Evrópudeildar kvenna sem fram fer í Phoenix Contact Arena í Lemgo á laugardaginn. Með Blomberg-Lippe leika landsliðskonurnar Andrea Jacobsen og Díana Dögg Magnúsdóttir.
- Egill Þórarinsson handknattleiksdómari sem býr í Noregi verður annað þeirra sem dæmir æfingaleik bandaríska karlalandsliðsins gegn norska þriðjudeildarliðinu Gøy á mánudagskvöld. Egill, sem er Hafnfirðingur, hefur verið landsdómari í Noregi um nokkurt skeið.
- Þetta verður síðasti æfingaleikur bandaríska landsliðsins áður en það hefur keppni á HM. Bandaríkin fengu boðskort frá Alþjóða handknattleikssambandinu til þess að taka þátt í HM 2025 og HM 2027 vegna undirbúnings þátttöku á Ólympíuleikunum í Los Angeles 2028.
- Bandaríska landsliðið verður í E-riðli með landsliðum Brasilíu, Noregs og Portúgal. Fyrsti leikurinn verður gegn landsliði Portúgal miðvikudaginn 15. janúar. Bandaríkin höfnuðu í 20. sæti af 32 liðum á HM 2023.
- Auglýsing -