- Auglýsing -
- Tryggvi Þórisson og liðsfélagar í Elverum voru ekki lengi að sleikja sárin eftir 12 marka tap fyrir Montpellier í Evrópudeildinni á þriðjudaginn. Þeir mættu til leiks í gær og innsigluðu norska meistaratitilinn annað árið í röð. Elverum vann Kristiansand TH, 39:32, í eina leik dagsins í 25. og næst síðustu umferð norsku úrvalsdeildarinnar.
- Tryggvi skoraði ekki mark í leiknum. Elverum hefur þar með 45 stig í 25 leikjum í efsta sæti. Kolstad er í öðru sæti með 39 stig og á tvo leiki óleikna.
- Kevin Gulliksen og Mikkel Solheim skoruðu níu mörk hvor fyrir Elverum.
- Einar Bragi Aðalsteinsson var ekki í leikmannahópi þegar lið hans, IFK Kristianstad vann HF Karlskrona, 34:30, í fyrstu viðureign liðanna í 8-liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í Kristianstad Arena í gær.
- Arnór Viðarsson skoraði eitt mark fyrir HF Karlskrona. Næsti leikur liðanna fer fram í Karlskrona á fimmtudaginn. Vinna þarf þrjár viðureignir til að komast í undanúrslit.
- Uwe Gensheimer fyrrverandi fyrirliða Rhein-Neckar Löwen og þýska landsliðsins hefur verið ýtt til hliðar hjá Rhein-Neckar Löwen en um nokkra hríð hafa þýskir fjölmiðlar greint frá ágreiningi milli Gensheimer og Maik Machulla þjálfara.
- Gensheimer hefur verið íþróttastjóri félagsins eftir að hann lagði skóna á hilluna fyrir nokkrum árum. Hann hefur nú verið settur í starf sem felst í fylgjast með efnilegum handknattleiksmönnum utan og innan Þýskalands.
- Austurríski línu- og landsliðsmaðurinn Tobias Wagner hefur ákveðið að ganga til liðs við serbneska meistaraliðið Partizan Belgrad að lokinni eins árs veru hjá Limoges í Frakklandi. Wager hefur víða komið við á síðustu árum, m.a. hjá Erlangen, Bregenz, Fenix Toulouse og Balingen-Weilstetten.
- Auglýsing -



