- Auglýsing -
- Tumi Steinn Rúnarsson skoraði þrjú mörk, þar af eitt úr vítakasti, þegar Alpla Hard tapaði með sex marka mun, 39:33, fyrir THW Kiel á æfingamóti í handknattleik karla í gær. Tryggvi Garðar Jónsson var einnig í leikmannhópi Alpla Hard og að vanda var Hannes Jón Jónsson við stjórnvölin á hliðarlínunni.
- Franski landsliðsmarkvörðurinn fyrrverandi, Vincent Gérard, hefur verið ráðinn markvarðaþjálfari franska meistaraliðsins Metz.
- Fram til þessa hefur sérstakur markvarðaþjálfari ekki verið hjá Metz sem árum sama hefur verið eitt besta kvennalið Evrópu í handknattleik og margfaldur franskur meistari. Gérard lagði skóna endanlega á hilluna í vor eftir að hafa hlaupið í skarðið hjá Barcelona í nokkrar vikur.
- Danski landsliðsmaðurinn Simon Pytlick segir óvíst hvort hann verði með Flensburg í fyrstu leikjum tímabilsins. Pytlick úlnliðsbrotnaði í febrúar í kappleik. Endurhæfing hefur reynst afar vandasöm.
- Þýski handknattleiksmaðurinn Aron Seesing fer frá Bergischer HC á næsta sumri og gengur til liðs við Rhein-Neckar Löwen. Seesing er 22 ára gamall og vakti athygli á síðasta keppnistímabili þegar Alfreð Gíslason kallaði hann inn í þýska landsliðið. Leikmenn liða úr 2. deild ar sjaldan valdir í A-landsliðið. Bergischer HC lék í næst efstu deild á síðasta tímabili en leikur reyndar í efstu deild á komandi leiktíð.
- Auglýsing -