- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Molakaffi: Viktor, Ísak, Guðmundur, Sigurjón, Sigvaldi, Benedikt, Árni, Elías, Dagur, Sveinn

- Auglýsing -
  • Viktor Gísli Hallgrímsson varði fjögur skot á þeim skamma tíma sem hann stóð í marki Barcelona í gær í 11 marka sigri liðsins á Granollers, 42:31, í  20. umferð spænsku 1. deildarinnar í handknattleik í gær. Emil Nielsen, markvörður Barcelona, var með 50% hlutfallsmarkvörslu. Barcelona er efst í deildinni með 40 stig að loknum 20 leikjum, 12 stigum á undan Granollers sem er í þriðja sæti. 
  • Ísak Gústafsson skoraði þrjú mörk og Guðmundur Bragi Ástþórsson tvö þegar lið þeirra, TMS Ringsted steinlá á heimavelli fyrir Bjerringbro/Silkeborg, 37:25, í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Ísak gaf tvær stoðsendingar og Guðmundur Bragi eina eftir að hafa verið einu sinni vikið af leikvelli. TMS Ringsted er í 9. sæti með 19 stig eftir 23 leiki. 
  • Sigurjón Guðmundsson átti stórleik, varði 11 skot af 18, 61% hlutfallsmarkvarsla, þann tíma sem hann stóð á milli stanganna hjá Kolstad í 24 marka sigri liðsins á Sandnes, 40:16, í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. 
  • Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði sex mörk, fjögur þeirra úr vítaköstum, fyrir Kolstad og Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði eitt mark auk þess að gefa fjórar stoðsendingar. Sigurjón og Sigvaldi áttu eina stoðsendingu hvor. 
  • Kolstad er í öðru sæti norsku úrvalsdeildarinnar, fjórum stigum á eftir Elverum þegar fjórar umferðir eru óleiknar. 
  • Árni Bergur Sigurbergsson skoraði fimm sinnum fyrir Ryger Stavanger þegar lðið tapaði með þriggja marka mun fyrir Nordstrand, 32:29, í næst efstu deild norska handknattleiksins í gær. Elías Már Halldórsson er þjálfari Ryger Stavanger en liðið vermir botnsætið um þessar mundir með 10 stig að loknum 21 leik af 26.
  • Dagur Sverrir Kristjánsson skoraði fjögur mörk í sex marka tapi Vinslövs HK í heimsókn til IFK Tumba HK í gær, 37:31, í Allsvenskan, næst efstu deild sænka handknattleiksins. Vinslövs HK er næst neðst og virðist stefna í fall úr deildinni. 
  • Sveinn Jóhannsson skoraði eitt mark fyrir Chambéry þegar liðið tapaði fyrir Cesson Rennes, 35:31, á útivelli í frönsku 1. deildinni í handknattleik á föstudagskvöld. Chambéry situr í sjöunda sæti af 16 liðum deildarinnar. Enn eru 11 umferðir eftir af deildarkeppninni.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -