- Auglýsing -
- Viktor Gísli Hallgrímsson var í marki Barcelona annan hálfleikinn í sigri liðsins á Valladolid, 39:28, á útivelli í 17. umferð spænsku 1. deildarinnar í handknattleik í gær. Viktor Gísli varði fimm skot, 22,7%. Barcelona hefur unnið alla leiki sína í deildinni til þessa. Um leið var þetta annar sigur Barcelona á Valladolid í röð á einni viku en liðin mættust í úrslitaleik spænsku bikarkeppninnar.
- Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði átta mörk, þar af fimm úr vítaköstum, þegar Kadetten Schaffhausen lagði GC Amicitia Zürich, 33:30, í A-deildinni í Sviss í gær. Kadetten hefur unnið 21 af 22 leikjum í deildinni á leiktíðinni og hefur yfirburðastöðu.
- Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði tvö mörk og gaf tvær stoðsendingar í eins marks sigri Skara HF á Önnereds HK, 25:24, á heimavelli í sænsku úrvalsdeildinni í gær. Skara færðist upp í þriðja sæti deildarinnar með sigrinum og er tveimur stigum á eftir Önnereds sem er í öðru sæti.
- Arnór Viðarsson skoraði fjórum sinnum fyrir HF Karlskrona þegar liðið lagði Ystads IF HF, 33:29, á heimavelli í sænsku úrvalsdeildinni í gær. Við sigurinn færðist HF Karlskrona upp í 9. sæti og ýtti Amo HK niður í 10. sæti. Ystads IF HF er í áttunda sæti, stigi á undan HF Karlskrona en hefur leikið einum leik fleira.
- Tumi Steinn Rúnarsson skoraði þrjú mörk en gaf 13 stoðsendingar þegar lið hans, Alpla Hard, tapaði fyrir Ferlach, 33:28, í austurrísku 1. deildinni í handknattleik í gær. Hannes Jón Jónsson þjálfar Alpla Hard út leiktíðina en söðlar þá um.
- Tryggvi Garðar Jónsson skoraði ekki mark fyrir Alpla Hard í leiknum við Ferlach. Alpla Hard er í sjötta sæti deildarinnar með 14 stig eftir 13 leiki. Ferlach er efst með 19 stig en hefur lokið 13 leikjum.
- Tjörvi Týr Gíslason skoraði ekki mark þegar lið hans HC Oppenweiler/Backnang tapaði enn einum leiknum í þýsku 2. deildinni í gær. Honum var einu sinni vikið af leikvelli. HC Oppenweiler/Backnang tapaði fyrir HSC 2000 Coburg, 30:22, á útivelli og rekur sem fyrr lestina í deildinni með tvö stig eftir 19 leiki.
- Viktor Petersen Norberg skoraði tvisvar í naumu tapi HC Elbflorenz 2006 fyrir HBW Balingen-Weilstetten, 28:27, á heimavelli í gær í 2. deild þýska handknattleiksins. Liðin höfðu þar með sætaskipti í deildinni. HBW Balingen-Weilstetten færðist upp í annað sætið en Viktor og félagar verða að sætta sig við þriðja sætið í bili.
- Stöðuna í mörgum deildum evrópsks handknattleiks er að finna hér.
- Auglýsing -


