- Auglýsing -
- Markvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson var ekki í leikmannahópi Barcelona þegar liðið vann stórsigur á Caserío Ciudad Real, 43:26, á heimavelli í 22. umferð spænsku 1. deildarinnar í handknattleik í gær. Barcelona er með fullt hús stiga og er langefst í deildinni þegar átta umferðir eru eftir óleiknar.
- Ólafur Brim Stefánsson skoraði 1 mark fyrir Junior Fasano í sigri á Raimond Sassari, 30:27, á heimavelli í 21. umferð ítölsku A-deildarinnar í gær. Ólafur Brim og félagar sitja í fjórða sæti deildarinnar með 25 stig þegar fimm umferðir eru eftir. Fjögur efstu liðin reyna með sér í úrslitakeppninni í vor.
- Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði tvö mörk í fjögurra marka tapi Amo HK gegn Ystads IF HF í undanúrslitum sænsku bikarkeppninnar í gær, 34:30. Ystads IF HF leikur til úrslita við IFK Kristianstad í dag en Amo mætir HF Karlskrona í leiknum um bronsverðlaunin.
- Auglýsing -


