Úlfar Páll Monsi Þórðarson átti frábæran leik fyrir RK Alkaloid þegar liðið vann einkar öruggan sigur á Eurofarm Pelister 2, 36:22, á útivelli í efstu deild Norður-Makedóníu í gærkvöldi.
Monsi skoraði átta mörk úr jafnmörgum skotum og var jafn markahæstur í leiknum ásamt Mohamed Aziz Ben Mahfoudh, sem skoraði átta mörk fyrir Eurofarm Pelister 2 en úr 18 skotum.
Eurofarm Pelister 2 er varalið Eurofarm Pelister en leikur þrátt fyrir það einnig í efstu deild ásamt aðalliði félagsins.
Monsi fer vel af stað með RK Alkaloid á nýju ári þar sem hann skoraði tvö mörk í 37:29 sigri á HC Tinex Prolet á heimavelli á laugardag.
RK Alkaloid er í fjórða sæti deildarinnar með 33 stig, jafnmörg og HC Ohrid sæti ofar og einu á eftir Eurofarm Pelister í öðru sæti. RK Vardar er á toppnum með 38 stig. Öll fjögur liðin hafa tryggt sér sæti í sex liða úrslitakeppni um norðurmakedónska meistaratitilinn.



