- Auglýsing -
Úlfar Páll Monsi Þórðarson skoraði sjö mörk og var með fullkomna nýtingu þegar RK Alkaloid vann HC Struga, 41:20, í 20. umferð úrvalsdeildarinnar í Norður Makedóníu í gær. Monsi var markahæstur leikmanna RK Alkaloid.
Þegar tvær umferðir eru eftir er RK Alkaloid í þriðja sæti með 33 stig eftir 20 leiki. Vardar er efst með 38 stig og meistarar Eurofarm Pelister eru í öðru sæti með 34 stig.
- Auglýsing -


