-Auglýsing-

Mót sem átti að auka áhuga í Bandaríkjunum fært til Evrópu

- Auglýsing -

Alþjóðlegt handknattleiksmót, með þátttöku evrópskra félagsliða, sem fram átti að fara í Bandaríkjunum í sumar fer fram í Evrópu. Óvíst er hins vegar hvar í álfunni verður leikið. Ástæður breytinganna eru m.a. sagðar vera vaxandi stirðleiki í samskiptum Evrópuríkja og Bandaríkjanna á pólitíska sviðinu. Svo segir Bandaríkjamaðurinn Mads Winther, sem borið hefur hitann og þungann af því að koma mótinu á fót með það að markmiði að kveikja áhuga á handbolta í Bandaríkjunum.


Til stóð að halda mótið frá 1. til 9. ágúst í Las Vegas. Evrópsku liðin Füchse Berlin, HBC Nantes, Aalborg Håndbold og Pick Szeged voru búin að boða komu sína á mótið í karlaflokki.

Í kvennaflokki voru Győri Audi ETO KC, Odense Håndbold, Brest Bretagne skráð til leiks auk japanska liðsins Honey Bee Ishikawa.

Til viðbótar ætluðu bandarísk lið að taka þátt, bæði í karla- og kvennaflokki auk þess til stóð að senda út frá mótinu í sjónvarpi.

Ekki liggur fyrir hvar í Evrópu mótið fer fram í sumar né hreinlega hvort enda til þess beinlínis að stofna að auka áhuga á handbolta í Bandaríkjunum, ekki Evrópu. Mörgum þykir ástæðan fyrir flutningi mótsins til Evrópu í sumar vera fyrirsláttur. Þar að auki munu leiktímar í Evrópu lítt falla að útsendingu sjónvarpsstöða í vesturhluta Bandaríkjanna.

Óvíst með 2028

Áfram er gert ráð fyrir að leikið verði í Bandaríkjunum 2027 og 2028. Reyndar er hætt við Ólympíuleikarnir sem haldnir verða í Los Angeles í síðari hluta júlímánaðar sumarið 2028 geti sett strik í reikningin ef ekki verður búið að blása af mótahald þessa ævintýris með öllu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -