- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

MT Melsungen staðfestir komu Reynis Þórs

Reynir Þór Stefánsson að skora sitt fyrsta mark með A-landsliðinu. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -


Þýska handknattleiksliðið MT Melsungen staðfesti í morgun að Reynir Þór Stefánsson, leikmaður Fram og mikilvægasti leikmaður úrslitakeppni Olísdeildar 2025, hafi skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Hann flytur til Melsungen í sumar en samningurinn tekur gildi 1. júlí.

Michael Allendorf framkvæmdastjóri MT Melsungen segir í tilkynningu að bundnar séu vonir við Reyni Þór sem verður tvítugur í sumar. Hann þurfi hinsvegar tíma til þess að vaxa og dafna svo hann verði klár í slaginn með liðinu. Allendorf segir að Reynir Þór fái tóm til þess að styrkjast enn frekar.


MT Melsungen situr í þriðja sæti þýsku 1. deildarinnar þegar ein umferð er eftir.

Fjórði Íslendingurinn

Reynir Þór verður fjórði íslenski handknattleiksmaðurinn til þess að leika með Melsungen. Auk Arnars og Elvars lék Alexander Petersson með liðinu 2021 til 2022. Guðmundur Þórður Guðmundsson þjálfaði lið MT Melsungen frá því snemma árs 2021 fram á haustmánuði 2022.

Karlar – helstu félagaskipti 2025

MT Melsungen er með bækistöðvar í samnefndum bæ um 170 km norðan við Frankfurt og álíka langt í austur frá Köln. Liðið leikur heimaleiki sína í Rothenbach-Halle í Kassel sem er skammt norðan Melsungen.

Tveir eru þegar hjá liðinu

Fyrir eru í herbúðum Melsungen íslensku landsliðsmennirnir Arnar Freyr Arnarsson og Elvar Örn Jónsson. Sá síðarnefndi fer til Magdeburg í sumar eftir fjögurra ára veru hjá Melsungen.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -