- Auglýsing -
Fjölnir og Þór mætast í oddaleik um sæti í Olísdeild karla í Fjölnishöllinni á fimmtudagskvöldið kl. 18.30. Fjölnir jafnaði metin í úrslitarimmu liðanna með sigri í fullri Íþróttahöllinni á Akureyri í gærkvöld, 26:22. Hvort lið hefur þar með tvo vinninga.
Umspil Olís karla: leikjadagskrá og úrslit
Frábær stemning var í Íþróttahöllinni á Akureyri á síðasta heimaleik Þórs á keppnistímabilinu þótt úrslitin hafi ekki verið heimamönnum að skapi.
Egill Bjarni Friðjónsson ljósmyndari var á leiknum í gærkvöld og sendi handbolta.is myndirnar í syrpunni hér fyrir neðan. (Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri).
Oddaleikur í Fjölnishöllinni á fimmtudagskvöld
- Auglýsing -