FH-ingar unnu ÍBV, 36:28, í annarri viðureign liðanna í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik í Vestmannaeyjum í gær. FH hefur þar með tvo vinninga en Eyjamenn engan. Deildarmeisturum FH vantar einn vinning til viðbótar til þess að tryggja sér sæti í úrslitum Íslandsmótsins.
Þriðja viðureign FH og ÍBV fer fram í Kaplakrika á sunnudaginn og hefst klukkan 18.30. Fjórða viðureignin í Vestmannaeyjum miðvikudaginn 1. maí og sú fimmta í Kaplakrika sunnudaginn 5. maí.
Jói Long ljósmyndari lét sig ekki vanta á æskustöðvarnar í gær þegar FH-ingar sóttu Eyjamenn heim. Hér fyrir neðan er myndasyrpa hans frá leiknum. Handbolti.is þakkar Jóa kærlega fyrir myndirnar. (Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri).
Sjá einnig:
Olís karla: Leikjadagskrá, úrslitakeppni
Launa FH-ingar Eyjamönnum lambið gráa?