- Auglýsing -
Nokkrir Íslendingar voru í áhorfendastúkunni í keppnishöllinni í Bregenz á miðvikudagskvöld þegar íslenska landsliðið mætti austurríska landsliðinu í fyrri viðureigninni í umspili um sæti á HM á næsta ári. Létu Íslendingarnir vel í sér heyra og létu ekki Austurríkismenn slá sig út af laginu, hvorki utan vallar né innan. Íslenska liðið vann leikinn, 34:30.
Fleiri Íslendingar verða á Ásvöllum á morgun þegar liðin mætast öðru sinni klukkan 16 enda var uppselt á leikinn á sunnudagskvöld. Var eftirspurn eftir miðum langt umfram framboð.
Hafliði Breiðfjörð ljósmyndari og ritstjóri fotbolta.net var á leiknum í Bregenz og smellti nokkrum myndum af Íslendingunum sem þar voru.
- Auglýsing -