- Auglýsing -
Strax að loknum landsleik Íslands og Svíþjóðar í handknattleik karla í N1-höllinni á Hlíðarenda í gærkvöld hittu leikmenn íslenska landsliðsins unga jafnt sem eldri stuðningsmenn.
Landsliðsmenn árituðu myndir, treyjur, skó og hvað eina annað sem hægt var að hripa á auk þess sem myndum var smellt í gríð og erg áður en farið var í sturtu og skipt um föt eftir viðureignina sem Svíar unnu, 35:33. Liðin mætast á ný í Kaplakrika á morgun, laugardag, kl. 17.
Hafliði Breiðfjörð ljósmyndari fylgdist með og smellti af nokkrum myndum.
-smelltu á myndirnar til þess að sjá þær stærri.
- Auglýsing -





















