- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Myndi gjarna vilja sjá Íslendingaliðið hrynja

- Auglýsing -

Tobias Grøndahl, leikmaður Füchse Berlín, talar ekki undir rós þegar hann er spurður út í fjárhagsvandræði norska Íslendingaliðsins Kolstad. Norðmaðurinn Grøndahl lék um fimm ára skeið með erkifjendum Kolstad í Elverum.

„Hjarta mitt slær fyrir Elverum og satt að segja myndi ég elska að sjá þetta allt saman hrynja [hjá Kolstad] og að Elverum vinni allt heila klabbið,“ sagði Grøndahl í samtali við þýska miðilinn Handball World.


Sigvaldi Björn Guðjónsson er fyrirliði Kolstad auk þess sem Benedikt Gunnar Óskarsson og Sigurjón Guðmundsson leika með liðinu.

Kolstad á í miklum fjárhagskröggum og hefur nýverið þurft að selja og leysa nokkra lykilmenn undan samningi, auk þess sem aðrir lykilmenn hafa verið beðnir um að taka á sig launalækkun.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -