- Auglýsing -
Flautað var til leiks í Olísdeild karla í gærkvöld eftir hlé síðan um miðjan desember. Þrír leikir fóru fram. FH lagði HK í Kórnum, 32:29, ÍBV vann Selfoss, 40:28 í Vestmannaeyjum, og KA hafði betur í heimsókn til ÍR, 37:31. Þrír leikir fara fram í deildinni í kvöld.
Hafliði Breiðfjörð ljósmyndari ákvað að trappa sig niður eftir EM-törnina og skrapp á leik ÍR og KA í Skógarseli. Hér fyrir neðan er nokkrar myndir Hafliða frá viðureigninni.
-Smellið á myndirnar til þess að sjá þær stærri.
- Auglýsing -






























