Eins og kom fram á handbolti.is lauk hinu árlega Ragnarsmóti í handknattleik á Selfossi á síðasta laugardag. ÍBV stóð uppi sem sigurvegari í kvennaflokki. HK vann í karlaflokki, hlaut fimm stig af sex mögulegum eins og ÍBV en hafði hagstæðari markatölu.
Að vanda voru viðurkenningar veittar í mótslok. Handknattleiksdeild Selfoss birti í morgun myndir sem teknar voru í mótslok á laugardaginn af þeim leikmönnum sem hrepptu viðurkenningar og voru á staðnum þegar mótið var gert upp.
Hér fyrir neðan eru birtar nokkrar myndir af heimasíðu Selfoss.






Kvennaflokkur:
Besti leikmaður: Sandra Erlingsdóttir, ÍBV.
Besti sóknarmaður: Birna Berg Haraldsdóttir, ÍBV.
Besti varnarmaður: Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir, Selfoss.
Besti markmaður: Amalie Frøland, ÍBV.
Markahæst: Katrín Helga Davíðsdóttir, Aftureldingu, 22 mörk.
Ragnarsmót kvenna:
1. sæti ÍBV.
2. sæti Selfoss.
3. sæti Afturelding.
4. sæti Víkingur.
Karlaflokkur:
Besti leikmaður: Dagur Arnarsson, ÍBV.
Besti sóknarmaður: Hákon Garri Gestsson, Selfoss.
Besti varnarmaður: Ísak Rafnsson, ÍBV.
Besti markmaður: Petar Jokanovic, ÍBV.
Markahæstur: Haukur Ingi Hauksson, HK, 25 mörk.
Ragnarsmót karla
1. sæti HK.
2. sæti ÍBV.
3. sæti Víkingur.
4. sæti Selfoss.