- Auglýsing -
Björgvin Páll Gústavsson markvörður Vals og íslenska landsliðsins fór á kostum í sigurleik Valsliðsins á TM Benidorm í annarri umferð Evrópudeildarinnar í handknattleik á Spáni í gærkvöld. Margoft sýndi Björgvin Páll frábær tilþrif en eitt atvik tók öðrum fram.
Skömmu fyrir hálfleik varði Björgvin Páll skot af stuttu færi en þó hrökk boltinn af honum í átt að markinu. Þá greip Björgvin Páll til þess ráðs að kasta sér eins köttur á eftir mús og tókst að forða marki á hreint ævintýralegan hátt eins og sjá má á myndskeiðinu hér fyrir neðan.
What an unreal save by Björgvin Pall Gustavsson! How did the ball stay out?! 😮🧐#ehfel @valurhandbolti pic.twitter.com/R9PrGWOvuf
— EHF European League (@ehfel_official) November 1, 2022
- Auglýsing -