- Auglýsing -
Aron Pálmarsson fékk frábærar móttökur þegar hann var kynntur síðastur en ekki sístur til leiks í Kaplakrika í gær áður en viðureign FH og Aftureldingar í Olísdeild karla hófst.
Aron var að taka þátt í sínum fyrsta leik fyrir FH í 14 ár. Í engu var sparað þegar Aron hljóp inn á leikvöllinn með nokkrum ungum iðkendum FH sem e.t.v. standa í hans í sporum eftir nokkur ár.
Fjölmenni var á leiknum, 1.770 manns, og nokkuð ljóst að margir þeirra voru komnir til þess að fylgjast með töfrum Arons á fjölum Kaplakrika.
Myndskeið fylgir hér fyrir neðan.
- Auglýsing -