- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Myndskeið: Fimmtán ára Bjartur Fritz skoraði sitt fyrsta mark

- Auglýsing -

Bjartur Fritz Bjarnason leikmaður ÍR er á meðal þeirra yngstu sem skorað hefur mark í efstu deild karla í handknattleik hér á landi. Hann skoraði sitt fyrsta mark í deildinni á föstudaginn gegn Val, 15 ára og 328 daga gamall. Minnkaði piltur muninn í 29:38, liðlega fjórum mínútum fyrir leikslok.


Markið má sjá í myndskeiði hér fyrir neðan.

Brynjar Narfi er sá yngsti

Fyrr á þessari leiktíð var FH-ingurinn Brynjar Narfi Arndal yngstur til að skora í efstu deild karla. Brynjar Narfi var 15 ára og 81 dags gamall er hann skoraði gegn ÍBV í Kaplakrika.

Á eftir Brynjari Narfa er Ragnar Jóhannsson á Selfossi, 15 ára og 138 daga gamall er hann skoraði fyrir Selfoss í leik við Hauka á Ásvöllum 12. mars 2006. Ragnar skoraði annað mark 12 dögum síðar.

Þriðji er Aron Pálmarsson hjá FH, 15 ára og 223 daga gamall er hann skoraði í leik FH og ÍBV 1. mars 2006.

Sonur Bjarna

Bjartur Fritz er sonur Bjarna Fritzsonar þjálfara ÍR og fyrrverandi landsliðsmanns og bróðir Baldurs Fritz markakóngs Olísdeildar karla á síðustu leiktíðar.

Brynjar Narfi sá yngsti til að skora í efstu deild – á þar með tvö met

Brynjar Narfi sá lang yngsti til að leika í efstu deild – Geir átti aldursmetið

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -