- Auglýsing -

Myndskeið: Glæsimark Óla – þess besta og markahæsta

- Auglýsing -


Færeyingurinn Óli Mittún var valinn mikilvægasti leikmaður heimsmeistaramóts 21 árs landsliða í handknattleik karla sem lauk í Póllandi síðdegis. Hann varð einnig markahæstur með 73 mörk. Svíinn Axel Månsson var annar með 70 mörk.


Óli leiddi færeyska liðið, sem fékk annað af tveimur boðskortum á mótið, til verðlauna en Færeyingar unnu bronsverðlaunin eftir frábært mót, fimm sigra, tvö töp og eitt jafntefli við íslenska landsliðið.

Í úrslitaleiknum við Svía um bronsverðlaunin í dag skoraði Óli, sem er sannkallaður töframaður á handboltavellinum einstaklega glæsilegt mark sem ekki er færi allra að gera og minnir helst á mark Óðins Þórs Ríkharðssonar á Evrópumótinu í Þýskalandi fyrir hálfu öðru ári.

Úrvalslið HM 21 árs:
Markvörður: Diogo Rema Marques (Portúgal).
Hægra horn: Magnus Storgaard Pedersen (Danmörk).
Hægri skytta: Nikolaj Larsson (Danmörk).
Miðjumaður: Axel Månsson (Svíþjóð).
Vinstri skytta: Joao Lourenco (Portúgal).
Vinstra horn: Noah Martinsson (Svíþjóð).
Línumaður: Moaz Azab (Egyptaland).

Markakóngur: Óli Mittún, Færeyjum, 73 mörk.
Mikilvægasti leikmaður mótsins: Óli Mittún.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -