- Auglýsing -
Liðnar eru rúmar þrjár vikur síðan Evrópumótinu í handknattleik karla lauk. Handknattleikssamband Evrópu er öðru hverju að rifja upp eftirminnilegar stundir frá Evrópumótinu. M.a. hafa þeir sett saman myndskeið með nokkrum frábærum markvörslum landsliðsmarkvarðarins Viktors Gísla Hallgrímssonar. Eitt tilþrifanna á myndskeiðinu er þegar að Viktor Gísli kastaði sér eins og köttur á eftir boltanum þegar Svíinn Eric Johansson reyndi að snúa boltanum fram hjá honum.
Yljum okkur við minningarnar frá EM 2026.
- Auglýsing -


