Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði ótrúlegt sigurmark fyrir FC Porto í Evrópudeildinni í handknattleik gegn Granollers, 34:33. Markið skoraði hann úr hægra horni á síðustu sekúndu leiksins eins og sjá má hér fyrir neðan.
Portúgalski landsliðsmaðurinn Rui Silva vann boltann þegar fimm sekúndur voru til leiksloka og tókst með erfiðismunum að senda boltann fram leikvöllinn þar sem Þorsteinn Leó greip boltann með nauminum út við hliðarlínu nærri hægra horninu. Þorsteinn Leó tvínónaði ekki heldur vatt sér inn úr horninu og þrumaði að markinu og skoraði sigurmarkið.
Sigurinn gerir að verkum að Porto á enn þá möguleika á efsta sæti riðilsins í Evrópudeildinni. Tapið gerir einnig að verkum að Granollers á engan möguleika á að sæti í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar.



