- Auglýsing -
Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna vann það færeyska, 28:23, í annarri umferð undankeppni Evrópumótsins í handknattleik í Þórshöfn í gær.
Eftir tvær umferðir í undankeppninni hefur íslenska liðið unnið sér inn fjögur stig, og stendur vel að vígi þegar þriðjungur leikja í undankeppninni er að baki.
Fjórir síðustu leikir undankeppninnar:
Miðvikudagur 28. febrúar: Ísland – Svíþjóð.
Laugardagur 2. mars: Svíþjóð – Ísland.
Miðvikudagur 3. apríl: Lúxemborg – Ísland.
Sunnudagur 7. apríl: Ísland – Færeyjar.
Hér fyrir neðan samantekt frá leiknum við Færeyjar sem fram fór í Høllinni á Hálsi í Þórshöfn.
- Auglýsing -