„Ég er mjög ánægður með sigurinn og hvernig við fórum inn í leikinn. Við vissum að KA kemur alltaf til baka á heimavelli og liðið gerði það í fyrri hálfleik. Við þurftum aðeins að ná vopnum okkar aftur í hálfleikshléinu. Ég er ánægður með síðari hálfleikinn og það hvernig við tryggðum okkur sigurinn,“ sagði Sigursteinn Arndal þjálfari FH í samtali við samfélagssíður handknattleiksdeildar KA eftir sjö marka sigur FH, 34:27, í KA-heimilinu í kvöld í 11. umferð Olísdeildar karla.
Sigurinn tryggði FH þriggja stiga forskot í efsta sæti Olísdeildar og byr undir báða vængi fyrir síðari viðureignina við Bocholt í Belgíu á laugardaginn í 32-liða úrslitum Evrópubikarkeppninnar í handknattleik. FH fer til Belgíu á föstudaginn.
Nánar er rætt við Sigurstein um leikinn í kvöld og Evrópuleikinn sem er framundan í myndskeiðinu hér fyrir neðan.
Steini Arndal sótti tvö stig í KA heimilið og var að vonum sàttur @handkastid @handboltiis pic.twitter.com/iKbmCyB4nO
— KA (@KAakureyri) November 29, 2023
Einnig er viðtal við Ásbjörn Friðriksson:
Àsi var kàtur að sigra á sínum gamla heimavelli í kvöld @handboltiis @FH_Handbolti @handkastid pic.twitter.com/PUXPkHP7cf
— KA (@KAakureyri) November 29, 2023