Hvað eftir annað sauð upp úr á meðal áhorfenda og jafnvel leikmanna og þjálfara í gær þegar RK Vardar 1964 og RK Eurofarm Pelister mættust í toppslag efstu deildar karla í handknattleik í Jane Sandanski Arena, keppnishöll Vardar, í Skopje í Norður Makedóníu.
Hvað eftir annað varð að stöðva leikinn og um tíma virtist óeirðalögregla eiga fullt í fangi og jafnvel ekki hafa nokkra stjórn á hópum óeirðaseggja úr báðum fylkingum. Flestir áhorfendur tóku ekki þátt í óeirðunum.
Here a video from GOL mk, where everything escalted! pic.twitter.com/n3CYZRj1km
— Rasmus Boysen (@RasmusBoysen92) March 26, 2023
Myndskeið eru í drefingu frá látunum og eru nokkur þeirra birt hér.
It all began with an incident in Jane Sandanski Arena where the Slovenian goalkeeper of RK Eurofarm Pelister was hit in the head by a coin! pic.twitter.com/usIWeb7HGA
— Rasmus Boysen (@RasmusBoysen92) March 26, 2023
Upphafið á uppþotunum má hugsanlega rekja til þess að snemma leiks var smápeningi kastað í höfuð markvarðar RK Eurofarm Pelister. Eftir nokkurt hlé var hægt að hefja leik á ný en fljótlega sauð upp úr aftur og fékkst við lítið ráðið um tíma. Voru nokkrir óeirðaseggir komnir inn á keppnisvöllinn og köstuðu vatnsflöskum frá varamannabekkjum upp í áhorfendastúkurnar.
Only minutes after everything escalated (video)! This resulted in the police entering the court and postponing the match by 20 minutes. Some of the worst scenes in handball I’ve seen. Big respect to the Vardar players to try to stop the madness. pic.twitter.com/KM6E6Ap1Ey
— Rasmus Boysen (@RasmusBoysen92) March 26, 2023
Leikmenn beggja liða hörfuðu af leikvellinum í skjól í búningsklefum meðan lögregla reyndi að koma böndum á ástandið. Um skeið var ástándið mjög alvarlegt.
Um tíma reyndu hugaðir leikmenn að tala um fyrir ólátabelgjunum.
Also between the two teams it was hot! pic.twitter.com/06oq4hAPPj
— Rasmus Boysen (@RasmusBoysen92) March 26, 2023
Enn og aftur sauð upp úr í síðari hálfleik og kom þá m.a. til stympinga á milli leikmanna og þjálfara.
Eftir langa mæðu tókst að ljúka leiknum. Vardar hafði betur, 31:24. Sennilega nægir sigurinn til þess að tryggja liðinu enn einn meistaratitilinn í handknattleik karla í Norður Makedóníu.
Allur leikurinn er hér fyrir neðan fyrir áhugasama.