- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Nítján þjóðir þegar komnar á HM 2027

- Auglýsing -

Alls hafa 19 þjóðir af 32 tryggt sér sæti á heimsmeistaramóti karla sem fer fram í Þýskalandi eftir tæpt ár. Þjóðirnar sem höfnuðu í sex efstu sætum nýafstaðins Evrópumóts hafa allar tryggt sér farseðilinn á HM 2027, þeirra á meðal Ísland.

Hinar fimm Evrópuþjóðirnar eru Evrópumeistarar Danmerkur, gestgjafar Þýskalands, Króatía, Portúgal og Svíþjóð. Alfreð Gíslason þjálfar sem kunnugt er Þýskaland og Dagur Sigurðsson þjálfar Króatíu.

Ekki aðeins undanúrslit EM – einnig er HM-farseðill í höfn hjá strákunum

Fjórar Asíuþjóðir fara á heimsmeistaramótið; Asíumeistarar Barein, Katar, Kúveit og Japan. Aron Kristjánsson þjálfar Kúveit og vann áður mikið og gott starf hjá Barein.

Afríkuþjóðirnar eru fimm; Afríkumeistarar Egyptalands, Alsír, Angóla, Grænhöfðaeyjar og Túnis. Fjórar þjóðir frá Suður-Ameríku hafa þá tryggt sér farseðilinn á mótið. Þær eru Suður- og Mið-Ameríku meistarar Brasilíu, Argentína, Síle og Úrúgvæ.

13 sæti eru enn laus. Tíu lið frá Evrópu eiga enn eftir að bætast við. Eitt sæti mun fara til Eyjaálfu, eitt til Norður-Ameríku og Karíbahafsins og Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF, mun ákvarða eitt sæti með tilliti til góðrar frammistöðu (e. wild card).

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -