- Auglýsing -

Noregur fær eitt sæti í Meistaradeildinni – Danir þrjú

Norska handknattleikskonan leikur með danska liðinu Esbjerg í Meisaradeildinni. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -


Óskum forráðafólks norsku liðanna Sola HK og Tertnes Bergen um sæti í Meistaradeild kvenna á næsta keppnistímabili var hafnað svo og frá rúmenska liðinu CS Minaur Baia Mare. Aðeins eitt norskt lið verður þar með í Meistaradeildinni á komandi vetri, meistarar Storhamar. Norðmönnum þykir súrt í broti að fá ekki annað sæti og hafa tvö lið í Meistaradeildinni. Vísa þeir m.a. til þess að grannar þeirra, Danir, megi senda þrjú lið til leiks.


Danir hafa tvö sæti í Meistaradeildinni samkvæmt landskvóta og falla sætin í hlut Odense Håndbold og Team Esbjerg. Ikast verður þriðja liðið frá Danmörku í deildinni. Ikast vann Evrópudeildina í vor. Danir voru einnig með þrjú lið á síðasta ári. Auk Esbjerg og Odense Håndbold var Nykøbing Falster Håndbold með í riðlakeppninni.

Noregur var með tvö lið í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð, Storhamar og Vipers Kristiansand. Síðarnefnda liðið heltist úr lestinni í janúar vegna gjaldþrots.

Eftirtalin félög fá inngöngu fyrir utan landskvóta:

Króatía – RK Podravka Vegeta.
Danmörk – Ikast Håndbold.
Frakkland – Brest Bretagne Handball.
Þýskaland – BV Borussia Dortmund.
Ungverjaland – FTC-Rail Cargo Hungaria.
Ungverjaland – DVSC Schaeffler.
Rúmenía – Gloria Bistrita.

Eftirtalin lönd og lið þeirra áttu víst sæti:

Danmörk – Team Esbjerg.
Danmörk – Odense Håndbold.
Frakkland – Metz Handball.
Þýskaland – HB Ludwigsburg.
Ungverjaland – Györi Audi ETO KC.
Svartfjallaland – OTP Group Buducnost.
Noregur – Storhamar Handball Elite.
Rúmenía – CSM Bucuresti.
Slóvenía – RK Krim Mercator.

Dregið verður í riðla Meistaradeildar kvenna á föstudaginn.

Nítján lið sækjast eftir sextán sætum

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -