„Það er ótrúlega spennandi, draumur að taka þátt í HM,“ segir Orri Freyr Þorkelsson sem tekur nú þátt í sínu fyrsta heimsmeistaramóti með A-landsliði karla í handknattleik en hann hefur áður verið með á stórmóti, EM 2022 í Búdapest. Orri Freyr hefur gert það gott með Sporting í Lissabon undanfarið hálft annað ár og samdi nýverið til tveggja ára til viðbótar eins og handbolti.is sagði frá í gær.
„Ég er spenntur að takast á við þetta eins og önnur verkefni sem mér bjóðast í boltanum. Ég er klár í slaginn eftir góðan undirbúning okkar síðustu daga. Nú þarf að láta verkin tala,“ segir Hafnfirðingurinn vaski.
Nokkrir leikmenn landsliðs Grænhöfðaeyja leika í efstu deild í Portúgal. Enginn þeirra er þó samherji Orra Freys um þessar mundir en á síðustu leiktíð var einn, Edmilson, hjá Sporting en hann réri á önnur mið síðasta sumar eftir 13 ár hjá Sporting.
„Það eru nokkur kunnuleg andlit úr portúgalska handboltanum í landsliðshópi Grænhöfðaeyja,“ segir Orri Freyr.
Nánar er rætt við Orra Frey í myndskeiði hér fyrir ofan.
Viðureign Íslands og Grænhöfðaeyja í fyrstu umferð riðlakeppni HM karla hefst klukkan 19.30 í kvöld. Handbolti.is er með blaðamann og ljósmyndara í Zagreb sem fylgjast með leiknum og öðrum því sem kemur íslenska landsliðinu við meðan það er með í mótinu.
Íslenska landsliðið leikur við Kúbu á laugardaginn kl. 19.30 og Slóveníu á mánudaginn á sama tíma. Hvað tekur við að leikjunum þremur loknum skýrist af úrslitum leikjanna þriggja við Grænhöfðaeyjar, Kúbu og Slóveníu.